Valmynd
Þrautirnar

Grifflur, vafningar, teygjubönd og annar búnaður er ekki leyfilegur nema vegna meiðsla og þá í samráði við dómara.


1.
Byrja inni í lokuðum bíl
Það þarf ekki að loka hurðinni
2.
Dekk
-Stíga þarf í 12 dekk. 
-Fyrir hvert dekk sem keppandi stígur
ekki í fær hann 3 sek í refsingu. 
3.
Stigi 
- 5 m langur stigi með 10 rimlum
- Fyrir hvern rimil sem keppandi snertir
ekki fær hann 3 sek í refsingu.
- Ef keppandi dettur úr stiganum þarf að byrja aftur á stiga.

4.
Klifurveggur
-5 m hár klifurveggur með neti. 
-Klifra upp og alla leið niður á gólf,
ef keppandi klifrar ekki alla leið niður á gólf fær hann 5sek í refsingu.
5.
Skriðþraut
-5 m langur og 50 cm hár.
Skríða þarf undir og alla leið í gegn

6.

Sekkir
Taka tvo 10kg sekki upp og koma þeim 5 metra og henda þeim ofan í kar.

7.
Steinn
25kg hnöttóttum stein lyft upp á 80cm kassa
8.
Sippuband
Sippa þarf jafnfætis10 sinnum
Keppandi fær 3sek refsingu fyrir hvert sipp sem hann sippar ekki
9.
Kaðall
Klifra upp kaðal og snerta merki í 4m hæð.
Frjáls aðferð niður.

 

10.
Bíll
Enda inn í bil, loka þarf dyrum til að tími stöðvist.
 

Þrautirnar
Úrslit móta
Hreystivellir
IceFitness
Landsbankinn er styrktaraðili Skólahreysti
Skólahreysti - info(hjá)skolahreysti.is - Facebook